Tvöfalt Ísland

Næstu dagar munu hafa úrslitaáhrif á stöðu efnahagsmála hér á landi, en þá kemur ríkisstjórnin til með að leggja fram og ræða þýðingarmikla fjármálaáætlun á þinginu. Forsætisráðherra hefur látið hafa eftir sér í fjölmiðlum að sameining stofnana sé yfirvofandi, hætt verði við framkvæmdir og skattar hækkaðir sem viðbragð við tólftu stýrivaxtahækkun Seðlabankans.

Viðreisn hefur lengi talað fyrir því að grípa þurfi í taumana varðandi útgjaldaaukningu hins opinbera sem nú á væntanlega að draga til baka í einhverri mynd. Við getum því ekki annað en verið jákvæð gagnvart því að loksins sé verið að bregðast við. En það er annað og stærra mál sem ríkisstjórnin forðast að horfast í augu við.

Hvers vegna eru vextir á Íslandi tvöfalt hærri en í nágrannalöndunum þó að verðbólgustigið sé svipað? Forsætisráðherra sagði við fyrirspurn frá mér fyrr í vetur að þetta skýrðist af stærra samhengi. Ítarlegri greining fékkst ekki.

Ekki jafnt gefið

Eftir nýjustu vaxtahækkun Seðlabankans verður þessi spurning sífellt áleitnari. Það er ekki hægt að skella skuldinni á bankann. Því svarið leynist í þeim pólitíska veruleika að vaxtaákvarðanir hans ná aðeins til hluta hagkerfisins.

Það er pólitísk ákvörðun að um þriðjungur hagkerfisins hefur heimild til að taka lán í erlendum gjaldmiðlum og greiða þar af leiðandi helmingi lægri vexti en aðrir og það er pólitísk ákvörðun að halda almenningi og minni fyrirtækjum föstum í krónuhagkerfi.

Á sínum tíma tók ég þátt í því að greiða fyrir löggjöf, sem heimilaði útflutningsfyrirtækjum að nota erlenda gjaldmiðla í reikningshaldi sínu sem greiddi götur þeirra til að geta tekið lán í erlendum gjaldmiðlum.

Þessu fylgir margfalt hagræði fyrir fyrirtækin. Þau geta notað gjaldmiðil, sem mælir raunverulega verðmætasköpun og samkeppnisstöðu. Gjaldmiðil sem aðrir þekkja og viðurkenna, því það gleymist oft í umræðunni að við erum eina þjóðin í heiminum sem notar íslensku krónuna og íslenskur almenningur borgar þá sérstöðu dýru verði.

Þegar Seðlabankinn hækkar vexti tvöfalt meira en í Evrópu þurfa einstaklingar og flest lítil og meðalstór fyrirtæki að bera þær byrðar sem má með réttu nefna krónuskatt, meðan útflutningsfyrirtækin sleppa. Þetta misrétti er ein af ástæðunum fyrir því að ég hef alltaf viljað stíga skrefið til fulls og tryggja öllum, ekki bara útflutningsfyrirtækjum, sömu aðstöðu.

Tvöfalt kerfi

Efnahagsstefnan á að miða að því að tryggja sem besta samkeppnisstöðu allra – einstaklinga og fyrirtækja. Það var því vissulega skref í rétta átt þegar útflutningsfyrirtækin gátu bæði tekið lán í erlendum gjaldmiðlum og notað þá í sínum viðskiptum.

Satt best að segja gat ég ekki ímyndað mér, þegar heimildin fyrir útflutningsfyrirtækin var opnuð, að hér yrði mynduð ríkisstjórn sem segði í stjórnarsáttmála að það væri andstætt hagsmunum Íslands að allir sætu við sama borð að þessu leyti.

Það er ekki land jafnra tækifæri sem skiptir vaxtabyrðinni með þessum hætti. Þar sem þyngstu byrðarnar eru lagðar á þau sem minnsta getu hafa en mun léttari byrðar á þau sem betur standa. Þetta þarf ekki að vera svona.

Greinin birtist fyrst á Vísi 27. mars 2023