Frekir, tengdir og ríkir fram fyrir röð

Nýlega hitti ég konu sem sagði mér frá dóttur sinni sem greindist með ADD fyrir rúmu ári. Dóttir hennar bíður enn eftir að komast að hjá geðheilsuteyminu. Önnur kona sagði mér frá syni sínum sem þarf aðstoð talmeinafræðings. Biðlistinn eftir aðstoð fyrir hann er tvö til fjögur ár. Sú bið mun hafa áhrif á líðan stráksins drjúgan hluta skólagöngu hans. Enn önnur kona sagði mér frá aldraðri móður hennar sem kemst ekki á hjúkrunarheimili heldur fer reglulega inn á Landspítala en er svo send heim um leið og færi gefst. Dóttirin veitir mömmu sinni þá aðstoð sem heilbrigðiskerfið gerir ekki.

Saga þessara þriggja kvenna er spegill á stöðu heilbrigðiskerfisins. Þessi veruleiki biðlista fólksins sem þarfnast heilbrigðisþjónustu.

Það á að byggja hús, en hvað svo?

Ríkisstjórnin kynnti nýlega nokkuð það sem hún kallar heildstæða áætlun um uppbyggingu innviða í heilbrigðiskerfinu til 2030. Ofboðslega stórt nafn um að byggja nýtt hús. Allir eru sammála um að byggja þurfi nýjan Landspítala. En við þekkjum öll hvað verður um hús sem byggð eru á sandi. Það þarf pólítíska forystu og heildarsýn í heilbrigðismálum því annars mega metnaðarfullar byggingar sín lítils. Steinsteypan ein og sér leysir ekki úr þeim alvarlega vanda að fólk sem þarf til heimilislæknis á höfuðborgarsvæðinu getur fengið næsta lausa tíma í september eða að á landsbyggðinni séu svæði sem er útlit fyrir að verði heimilislæknislaus með öllu. Húsið sjálft mun ekki heldur leysa þá stöðu að amma og afi liggi inni á Landspítala því hjúkrunarrými eru einfaldlega ekki til. Og ekki heldur leysa þá erfiðu stöðu að börn dúsa á biðlistum svo árum skiptir. Steinsteypan leysir heldur ekki málin fyrir fólkið leitar á bráðamóttöku þar sem það bíður klukkustundum saman. Og nýtt hús mun ekki breyta þeirri stöðu að starfsfólkið er örmagna.

Biðlistastjórnin

Höfuðsóttin í heilbrigðismálum hér á landi felst í því að fólkið fær ekki bót sinna meina. Ekki nema það búi yfir þeim mun meiri sannfæringarkrafti, þekki einhvern innan kerfisins eða geti borgað fyrir þjónustu í öðru landi. Með öðrum orðum fá frekir, tengdir og ríkir betri þjónustu í heilbrigðiskerfinu. Sterkt heilbrigðiskerfi byggir á því að veita góða heilbrigðisþjónustu og ekki síður á því að sú þjónusta sé aðgengileg. Góð heilbrigðisþjónusta er samspil opinberra stofnana, almannaheillasamtaka og sjálfstætt starfandi heilbrigðisfólks. Það þarf að búa vel um starfsfólk í greininni, leyfa og ýta undir fjölbreytta þjónustu og vinnustaði innan heilbrigðiskerfisins, hlúa að nýsköpun og umfram allt; veita fólkinu í landinu heilbrigðisþjónustu. Heilbrigðisþjónustu sem er öllum aðgengileg óháð stétt og stöðu.

Alvarleg aukaverkun þess að gera ekkert

Eftir sex ára samstarf ríkisstjórnarflokkanna þriggja er að verða ljós að heilbrigðismálin eru þeim ofviða í stefnumótun. Sú kyrrstaða hefur því miður þá alvarlegu aukaverkun að biðlistarnir bara lengjast og fólk finnur betur og betur að við erum sem þjóð að færast frá þeim grunngildum sem við viljum að gildi um aðgengilega heilbrigðisþjónustu.

Biðlistarnir eru orðnir helsta vörumerki ríkisstjórnarinnar í heilbrigðismálum. En þetta þarf ekki að vera svona.

Greinin birtist fyrst á Vísi 11. maí 2023