Viðsnúningur í rekstri borgarinnar

Pawel Bartoszek

Þegar kórónuveirufaraldur skall á með fullum þunga snemma ársins 2020 var ljóst að hann myndi hafa gríðarmikil áhrif á fjármál sveitarfélaga. Tekjur drógust saman og kostnaður vegna launa, veikinda og sóttvarnaaðgerða jókst verulega.

Viðbrögð Ríkisins gagnvart sveitarfélögum var að fella úr gildi ákvæði laga um fjármál sveitarfélaga. Ríkið sagði semsagt: Við vitum að staðan verður það erfið að við ætlum að leyfa ykkur að safna skuldum.

Rétt að verja störf í kreppu

Við í Viðreisn lögðum á það mikla áherslu á að borgin myndi sjálf setja sér viðmið um skuldir og afkomu í stað þeirra sem ríkið hafði fellt úr gildi. Það var gert árið 2021. Þau viðmið hafa öll haldið og gott betur.

Það var rétt ákvörðun í Covid-krísunni að standa vörð um störf og halda uppi fjárfestingu. Ekkert vit hefði verið í því að fylla atvinnuleysisskrá af fólki og stöðva allar framkvæmdir.

En nú er tími aðhalds

En það er ekki bara hægt að vera Keynesisti í kreppu. Nú þegar atvinnuleysi er í kringum 3% þarf borgin ekki að halda uppi atvinnustigi. Nú þegar vextir eru yfir 9% er að sama skapi skynsamlegt að fresta fjárfestingum. Það erum við að gera.

Hagræðingin skilaði árangri

Borgin verður nú rekin með afgangi, ári fyrr en áætlað var. Afgangur á borgarsjóði árið 2024 verður 590 milljónir. Þar munar sannarlega um þær miklu hagræðingaraðgerðir sem ráðist var í í fyrra. Samtals spöruðum við um 3 milljarða, til frambúðar. Án þessara aðgerða væri borgarsjóður enn rekinn með halla.

Aðhaldið þarf engu að síður að halda áfram. Skoða þarf sérstaklega yfirbygginguna , forðast ný verkefni, rýna gjaldskrár og tryggja fjármögnun málaflokks fatlaðs fólks í samstarfi við ríkið. Engu að síður er full ástæða til bjartsýni. Fjármálaáætlun Reykjavíkurborgar sýnir jákvæðan viðsnúning frá fyrri árum. Hann ber að þakka því plani sem lagt var upp með í Covid-krísunni og hagræðingaraðgerðum seinasta árs. Við í Viðreisn erum stolt að þátttöku okkar í þessum viðsnúningi.

 

Greinin birtist fyrst á Vísi 7. nóvember 2023