30 okt Við þurfum breytingar
Sem þjóð erum við í sárum eftir röð ótímabærra dauðsfalla vegna voðaverka og slysa.
Það er erfið tilhugsun að morðum á Íslandi fari fjölgandi í ár vegna þess að börn eru þolendur. Það er staðreynd sem við getum ekki sætt okkur við.
Reglulega heyrist af ungu fólki sem glímir við alvarlegan vanda en fær ekki boðleg úrræði eða vistun.
Örfáum dögum eftir að forsvarsmenn Stuðla lýstu áhyggjum sínum opinberlega af alvarlegri stöðu lést ungmenni þari.
Ekkert mikilvægara en öryggi fólks
Ekkert verkefni er mikilvægara en öryggi fólks. Og öryggi og velferð barna á alltaf að vera fremst í forgangsröð okkar.
Fyrir þremur vikum fór fram sérstök umræða á Alþingi um stöðu barna með fjölþættan vanda. Ég óskaði eftir að þessi umræða færi fram og að barnamálaráðherra væri til svara.
Það er hópur barna í íslensku samfélagi sem glímir við alvarlegan vanda og oft er hann af margvíslegum toga. Þarna undir getur verið hegðunarvandi, geðraskanir, þroskaraskanir – og börn sem beita ofbeldi. Síðast en ekki síst eru þetta börn sem búa við vondar aðstæður á eigin heimili. Jafnvel óboðlegar aðstæður sem ekkert barn á að þurfa að upplifa.
Við vitum hver vandinn er
Hópar hafa verið að störfum af hálfu hins opinbera og skýrslur unnar. Skýrslur sem hafa kortlagt þann fjölda barna sem þarfnast aðstoðar og þjónustu. Þeir hafa greint þörfina og kostnað og sýnt svart á hvítu að með því að grípa inn í og veita þjónustu strax sé komið í veg fyrir alvarlegar afleiðingar og mikinn kostnað síðar meir.
Í ágúst 2023 voru kynntar tillögur í sérstakri skýrslu um þörf á þjónustu fyrir börn með fjölþættan vanda. Síðan hefur lítið sem ekkert gerst. Og engar aðgerðir lúta að þeim bráðavanda sem blasir við núna.
Meðferðarúrræðum hefur verið lokað með loforðum um að ný séu væntanleg. Það hefur hins vegar ekki gengið eftir. Þörfin fyrir þjónustu er í stuttu máli mun meiri en sú þjónusta sem býðst.
Það fjárlagafrumvarp sem ríkisstjórnin lagði fram í haust geymir því miður engin raunveruleg svör. Ekki frekari meðferðarúrræði fyrir börn né frekari stuðning við foreldra sem eiga barn með alvarlegan geðrænan vanda. Ekki niðurgreiðslu á sálfræðiþjónustu. Ekki frekari meðferðarúrræði vegna barna í fíknivanda. Og ekki það fjármagn sem þarf til að lögregla geti varið tíma í fyrirbyggjandi samskiptum við börn og ungmenni.
Við getum betur
Eftir að Sjálfstæðisflokkurinn sprengdi ríkisstjórnina er nú starfandi starfsstjórn sem hefur það eina hlutverk að tryggja að landið sé ekki án ríkisstjórnar.
Starfsstjórnin situr í raun bara þar til ný ríkisstjórn tekur til starfa. Þetta stóra verkefni bíður þess vegna næstu ríkisstjórnar. Viðreisn mun leggja áherslu á þetta verkefni komumst við í ríkisstjórn.
Þetta þarf ekki að vera svona. Við getum gert betur en þetta. Breytum þessu saman.