Ís­lenski fast­eigna­markaðurinn: spila­víti þar sem húsið vinnur alltaf

Það er fagur vetrardagur. Maður gengur hægum skrefum inn í hús með stóru skilti sem á stendur: „Casino – Akureyri“. Hann sest við rúllettuborð. „Rautt eða svart?“ er spurt. Hann veðjar fyrst á svart en tapar bæði þegar kúlan lendir á svörtu og rauðu. Örlítið óöruggur og hikandi tekur hann spilapeningana og færir yfir á rauðan. Hann heldur samt áfram að tapa í hverju kasti. Ringlaður spyr hann: „Hvenær vinn ég eiginlega?“ Borðstjórinn brosir og segir: „það er bara ef hvíta talan kemur upp, en það gerist nánast aldrei“.

Svona er það fyrir venjulegt fólk að stíga inn á fasteignamarkaðinn á Íslandi, óháð því hvað þú velur, þá tapar þú. Þú getur valið verðtryggt lán og þá tapar þú smátt og smátt höfuðstólnum eða þá velur þú óverðtryggt lán og þá tapast ráðstöfunartekjurnar strax.

Of mörg galin veðmál

Í heimsfaraldrinum lækkuðu vextir niður í gólf og húsnæðisverð hækkaði um tugi prósenta. Svo skrúfuðust þeir upp í næstum 10% og afborganir lána tóku sífellt stærri skerf af tekjum heimilisins með tilheyrandi skerðingu ráðstöfunartekna. Það eru ótrúlega mörg veðmál sem fólk þarf að taka þegar það ákveður að setjast við rúllettuborðið. Hvernig fara næstu kjarasamningar? Ætli dollarinn sé að styrkjast? Hvernig verður loðnuvertíðin í ár? Íslenskt húsnæðislán er afleiðusamningur með ótal sjálfstæðum breytum.

Afleiðingin af þessu er að ungt fólk missir trú á því að Ísland sé land framtíðar og flytur til landa þar sem húsnæðismarkaðurinn er með rólegri brag. Við þekkjum sennilega öll fólk sem flutti erlendis til að sækja sér menntun, prófa eitthvað nýtt og víkka sjóndeildarhringinn. Marga langar að snúa heim en geta ekki hugsað sér það því þau vilja ekki stíga inn í spilavítið. Þessi atgervisflótti skaðar okkur öll. Færri frumkvöðlar þýðir minni nýsköpun og einhæfara atvinnulíf. Færri kennarar og færri hjúkrunarfræðingar skerðir lífsgæði okkar allra.

Það þarf að loka þessu spilavíti. Lausnirnar liggja í stöðugra efnahagsumhverfi og stöðugra framboði af húsnæði um allt land fyrir fólk í öllum tekjuhópum. Viðreisn vill koma fleiri lóðum hins opinbera í notkun fyrir fasteignamarkaðinn og einfalda kerfið svo það sé fljótlegra og ódýrara að byggja. Við viljum einfalda bæði skipulags- og byggingarferlin öllum til hagsbóta.

Við þurfum að taka höndum saman og skapa stöðugri húsnæðismarkað. Við eigum öll rétt á þaki yfir höfuðið án þess að þurfa að leggja allt traustið á einhverja rúllettu.

Breytum þessu.

Greinin birtist fyrst á Vísi 25. nóvember 2024