Málefnasamningur Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í Hafnarfirði kynntur

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar kynntu í gær málefnasamning sem rammar inn samstarf flokkanna á grundvelli skýrrar sameiginlegrar sýnar: Að Hafnarfjörður verði öflugt, fjölskylduvænt og framsækið sveitarfélag þar sem traustur rekstur, sterk grunnþjónusta, kraftmikið atvinnulífi og aukin lífsgæði íbúa á öllum æviskeiðum fer saman.

Orri Bjönsson, oddviti Sjálfstæðisflokks verður formaður bæjarráðs, Karólína Helga Símonardóttir, oddviti Viðreisnar verður forseti bæjarstjórnar og Þórður Þórarinsson verður ráðinn bæjarstjóri af meirihlutanum.

Lesa má málefnasamninginn hér