Sjálfstæðisflokkurinn og Viðreisn mynda meirihluta í Mosfellsbæ

Sjálfstæðisflokkurinn og Viðreisn hafa undirritað málefnasamning og munu mynda nýjan meirihluta í bæjarstjórn Mosfellsbæjar.

Í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum fékk Sjálfstæðisflokkurinn, undir forystu Hilmars Gunnarssonar, fimm fulltrúa kjörna í bæjarstjórn. Viðreisn fékk einn fulltrúa kjörinn, Gylfa Þór Þorsteinsson, sem leiddi lista flokksins. Saman mynda flokkarnir því sex manna meirihluta í bæjarstjórn Mosfellsbæjar.

Samkvæmt samkomulagi flokkanna verður Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri Mosfellsbæjar. Jana Katrín Knútsdóttir, sem skipaði annað sæti á lista Sjálfstæðisflokksins, formaður bæjarráðs og Gylfi Þór Þorsteinsson forseti bæjarstjórnar.

Samstarf flokkanna hefur verið rammað inn í málefnasamning sem byggir á gildum frelsis og ábyrgðar með áherslu á mannlega nálgun þar sem metnaður er lagður í að veita góða þjónustu við íbúa, að rekstur bæjarins sé ábyrgur og traustur og stjórnsýslan skilvirk og gegnsæ. Samstarfið mun þannig miða að því að tryggja að Mosfellsbær verði áfram eftirsóknarverður staður bæði til að búa og starfa í.

„Við erum þakklát fyrir það traust sem íbúar Mosfellsbæjar hafa sýnt okkur og tökum við þessu verkefni af auðmýkt og ábyrgð. Fram undan er spennandi tími þar sem við ætlum að vinna saman, hlusta á íbúa og koma góðum málum í framkvæmd. Mosfellsbær er frábært samfélag með mikla möguleika og nú þegar málefnasamningurinn er klár er ekkert annað að gera en að bretta upp ermar og hefjast handa,“ segir Hilmar Gunnarsson, verðandi bæjarstjóri Mosfellsbæjar.“

„Viðræður flokkanna hafa einkennst af trausti og góðri samvinnu sem gefur góð fyrirheit. Við erum spennt fyrir samstarfinu og hlökkum til að hefjast handa,” segir Gylfi Þór Þorsteinsson verðandi forseti bæjarstjórnar.

Lesa má málefnasamning Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks í Mosfellsbæ hér