04 sep Glapræði í Gjótunum
Hraunin í Hafnarfirði eru eitt af þremur svæðum sem mynda hina hafnfirsku borgarlínukeðju. Í kjölfar Hraunanna kemur miðbærinn og þar á eftir hafnarsvæðið. Á þessum svæðum er einstakt tækifæri til þess að byggja upp nútímalega, þétta og blandaða byggð sem hefur á sér annan brag og nútímalega samsetningu samgöngumáta en almennt á höfuðborgarsvæðinu.
Forvinnan að uppbyggingu á Hraunum var góð og fagleg þar sem unnið var ítarlegt rammaskipulag með metnaðarfullum markmiðum um vandaða byggð. Nýverið var lögð fram deiliskipulagstillaga að fyrsta reitnum á svæðinu: Gjóturnar. Sú skipulagstillaga er harkaleg U-beygja frá fyrri tillögu.
Helstu breytingarnar eru:
- Hæðir húsa eru stórauknar, úr fjögurra til sex hæða byggð upp í tíu hæðir. Þetta eykur skuggamyndun á svæðinu og minnkar lífsgæði bæði íbúa og gesta.
- Rými fyrir verslun og þjónustu er skert verulega sem minnkar gæði byggðarinnar þar sem þar verða í kjölfarið færri vinnustaðir og minni þjónusta.
- Bílastæðamagn er fjórfaldað. Hér er notast við úthverfaviðmið og horfið frá hugmyndafræði borgarlínu.
- Einkabíllinn er settur í fyrsta, annað og þriðja sætið í hverfinu. Annað er skör neðar.
Samgöngumiðað skipulag miðar að því að gera umhverfið mannvænt þannig að gangandi vegfarendur fá besta rýmið, þá hjólandi, svo notendur almenningssamganga, því næst vöruflutningar og loks er einkabíllinn í fimmta sætinu. Bílmiðað skipulag, eins og ofangreint er andstæða þess.
Á suðurhlið reitsins til móts við borgarlínu og síðdegissól er nær ekkert svæði fyrir gangandi vegfarendur. Gangbrautir eru þröngar 80 cm ræmur. Þar á eftir kemur bílastæði þar sem bílar skaga inn á gangbrautina, þá kemur auka akvegur fyrir bílastæði, annað bílastæði og þá loks almennilegur göngu/hjólastígur. Fram kemur í útskýringu að einhvers staðar langt inn í framtíðinni komi einhvern tímann borgarlína.
Þetta skipulag er yfirlýsing um að annað hvort verði ekki biðstöð borgarlínu fyrir framan þetta svæði eða að Hafnarfjörður ætli sér að byggja umtalsvert verri umgjörð um borgarlínu en önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu.
Til þess að gera lesendum auðveldara að glöggva sig á muninum á vönduðum þéttingarreit við borgarlínu og því sem Hafnfirðingum er boðið upp á í Gjótunum er rétt að skoða til samanburðar samkeppnistillögu um uppbyggingu í kringum Orkuhúsið í Ármúla. Í Ármúlanum sést hvar uppbyggingin liggur að borgarlínu og gangandi vegfarendum er gefið rými til athafna. Í skipulagstillögu um Gjóturnar er gangandi vegfarendur því sem næst úthýst.
Hafnfirðingar eiga betri bæ skilið en þessi skipulagstillaga býður upp á. Vonandi verður beygt af núverandi villuslóð og stigin gætnari spor með hag framtíðaríbúa bæjarins í huga.
Skipulagstillaga – Gjótur
Skipulagstillaga að þéttingarreit borgarlínu í Hafnarfirði. Blönduð byggð með 485 íbúðum. Bílastæði og akbraut býr til skjaldborg utan um verslanir og gerir svæðið óaðgengilegt og óaðlaðandi fyrir gangandi, hjólandi, farþega almenningssamgangna og raunar líka akandi. Engin tilraun gerð til þess að tengja svæðið við borgarlínu. Sólríkasta svæðið er tekið frá fyrir bílastæði.
Suðurlandsbraut - hugmyndasamkeppni
Hér er til samanburðar sigurtillaga í hugmyndasamkeppni við Suðurlandsbraut (reitur áður kenndur við Orkuhúsið). Blönduð byggð með 450 íbúðum. Dökka svæðið fyrir miðju er almenningsrými fyrir gangandi sem flæðir að borgarlínu og opnum grænum svæðum milli húsa. Samsíða bílastæði tryggir aðgengi viðskiptavina að þjónustu.
Jón Ingi Hákonarson, oddviti Viðreisnar í bæjarstjórn.
Óli Örn Eiríksson, varamaður Viðreisnar í Skipulags og byggingarráði.
Greinin birtist fyrst í Fjarðarfréttum 4. september 2019