01 nóv Góð í krísu
Kollegi minn einn í borgarpólitíkinni sagði við mig um daginn að við Íslendingar værum góð í krísustjórnun. Ég held það sé nokkuð til í því, ætla allavega að leyfa mér að trúa því þar sem ekki veitir af á komandi misserum. Fjármálastjórn sveitarfélaga er stanslaust viðbragð við aðstæðum. Undanfarin ár hafa verið áhugaverð, þar sem við höfum þurft að bregðast við ýmsum áskorunum, allt frá falli WoW á vormánuðum 2019 með vaxandi atvinnuleysi og samdrætti í ferðaþjónustu,við heimsfaraldri sem stóð í tvö ár og nú við stríði í Evrópu, verðbólgu í hærri hæðum en við höfum mjög lengi séð í öllum hinum vestræna heimi og þar af leiðandi hækkað verð á öllum okkar aðföngum.
Breyttir tímar kalla á skýrt viðbragð
Framundan er óvissa og það má fastlega gera ráð fyrir því að komandi ár verði róstursöm. Það virðist allavega ekki ætla að vera nein lognmolla framundan, engin góðærisár sjáanleg. Í þeirri fjárhagsáætlun sem við leggjum fram í dag í Reykjavík gerum við ráð fyrir vexti en við stígum einnig ákveðin á bremsuna hvað varðar reksturinn. Fram hefur komið að þetta ár hefur verið erfitt hvað varðar fjárhag borgarinnar. Framúrkeyrsla umfram áætlanir er staðreynd. Heimsfaraldur, verðbólga og verðhækkanir hafa haft mikil áhrif á reksturinn sem við verðum nú að stemma stigu við. Þess vegna erum við núna að leggja ríkar kröfur á hagræðingu.
Starfsmönnum borgarinnar hefur fjölgað á síðustu árum, nokkuð umfram lýðfræðilega þróun. Slík þróun er ekki sjálfbær til lengri tíma litið og af þeim sökum ætlum við að hagræða í starfsmannahaldi til næstu ára. Fyrir tveimur árum vorum við að horfa á 13% atvinnuleysi. Nú er mælist það innan við 3%. Heildarmyndin er allt önnur og við þurfum ekki í sama mæli standa með heimilum á erfiðum tímum vegna atvinnuleysis.
Við leggjum áherslu á verkefnamiðaða hagræðingu, það þýðir að við skoðum hvað við getum hætt að gera, hvað viljum við leggja niður, sameina eða endurskipuleggja. Við ætlum að leita hagkvæmustu leiða til útfærslu á þjónustu og rekstri. Það á jafnt við um lögbundna og lögheimila þjónustu. Einnig munum við rýna samstarfs-, styrktar- og þjónustusamninga við þriðja aðila. Með ákveðnum og stöðugum aðhaldsaðgerðum næstu 3-4 ár teljum við okkur geta jafnað okkur eftir áföll undanfarinnar ára.
Hlúum að grunnþjónustunni
Um leið og farið er í hagræðingu og aðhald í rekstri þá munum við skoða lögbundin verkefni sveitarfélaga, og sýna þeim alúð og athygli með það að markmiði að fjármögnun og stjórnun sé sem réttust og í góðu jafnvægi. Það eykur stöðugleika og fyrirsjáanleika í rekstrinum sem hefur bein áhrif á starfið og gæði þjónustunnar hvort sem það eru menntamál, velferðamál eða uppbyggingarmál.