28 okt Ísland þarf ríkisstjórn um almannahagsmuni – ekki sérhagsmuni
Sjö ára tilraunastarfsemi um samstarf VG, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks er blessunarlega lokið og komið er að kosningum.
Kosningum sem snúast um forgangsröðun, hagræðingu og sókn í efnahagslegum kjörum fólks og fyrirtækja.
Kosningum um breytingar, efnahagslegt jafnvægi og síðast en ekki síst lausnamiðaða hugsun. Til þess þarf ríkisstjórn sem hefur hagsmuni almennings að leiðarljósi– ekki sérhagsmuni. Viðreisn mun beita sér af alefli fyrir hagsmunum almennings í nýrri ríkisstjórn – eftir sjö ár af óstjórn og sérhagsmunagæslu ríkisstjórnarinnar sem er að hverfa af sviðinu.
Þau skilja vinnandi fólk eftir í erfiðri stöðu
Vinnandi fólk á Íslandi er í erfiðri stöðu og lítil og meðalstór fyrirtæki eins og korktappi á rúmsjó. Verðbólga hefur verið yfir markmiðum í meira en fjögur ár og greiningaraðilar spá að hún nái markmiðum í fyrsta lagi haustið 2026 – eftir 80 mánaða samfellt verðbólgutímabil. Venjulegt fólk finnur fyrir því að búðarferðin kostar hálfan handlegg og matvara hækkar viku eftir viku. Stýrivextir eru 9% sem lönd eins og Rússland og Úkraína þekkja.
Enginn hefur hugmynd um hvernig afborgun af lánum kemur til með að líta út eftir ár. Jafnvægið er ekkert og fyrirsjáanleiki lítill. Þetta þarf ekki að vera svona.
Þau hafa leyft verðsamráð
Á sama tíma og verðbólga er í hámarki hefur ríkisstjórnin samt sem áður unnið markvisst gegn samkeppni á markaði. Samkeppnisreglur hafa verið teknar úr sambandi í landbúnaði– sem fer gegn hagsmunum neytenda og bænda. Svigrúm hefur verið skapað fyrir stórfyrirtæki til að stunda verðsamráð, sem bitnar á fólki og litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Þetta þarf ekki að vera svona.
Þau bjóða hæstu skatta í heimi en ekki góða þjónustu
Viðreisn hefur lengi bent á að skattbyrði á Íslandi er ein sú hæsta í heiminum. Um helmingur verðmætasköpunar fer í skatta og lífeyrissjóði og um 70% álagðra gjalda eru greidd af þriðjungi landsmanna. Þetta er millistéttin á Íslandi.
En þrátt fyrir þessa háu skatta eru gæði opinberrar þjónustu langt frá því að vera sambærileg við það sem þekkist á Norðurlöndum. Fjármunir sem ættu að fara í innviðafjárfestingar og heilbrigðisþjónustu fara nefnilega í að greiða vexti af lánum ríkisins. Á meðan lengjast biðlistar í heilbrigðiskerfinu, unga fólkið skorar lágt í alþjóðlegum samanburði menntunar, og eldra fólk liggur mánuðum saman á göngum Landspítalans. Þetta þarf ekki að vera svona.
Viðreisn er rétti kosturinn fyrir fólk og fyrirtæki
Til að vinna á verðbólgu þarf alvöru efnahagsstjórn sem bætir efnahag heimilanna. Í nýrri ríkisstjórn mun Viðreisn leggja áherslu á ábyrgð og forgangsröðun. Skattahækkanir á vinnandi fólk og lítil – og meðalstór fyrirtæki geta ekki komið til greina í landi hárrar verðbólgu og hárra skatta.
Leggjum frekar áherslu á hagvöxt, betri nýtingu fjármuna og samkeppni í þágu fólks og fyrirtækja. Þannig bætum við hag fólks og fyrirtækja á Íslandi.