Þarf ég að flytja úr landi?

Síðustu daga hefur verið býsna kalt á Íslandi. Fólk vaknaði og þurfti að skafa af bílnum og hafði væntanlega miðstöðina á fullu á leiðinni í vinnu eða skóla í baráttunni við kuldann. Þetta er auðvitað ekkert nýtt og það er kannski óraunhæft að ætlast til þess að næsta ríkisstjórn nái fullri stjórn á veðrinu.

Við í Viðreisn ætlum okkur hins vegar að ná stjórn á fjölmörgu öðru og þannig tryggja að ungt fólk sjái hag sinn í að búa á Íslandi. Á síðasta ári fluttu nefnilega 3.025 íslenskir ríkisborgarar, 18 til 35 ára gamlir, frá landi. Ég efast um að það hafi verið eingöngu vegna veðurs.

Það er allt svo dýrt hérna

Langvarandi verðbólga og hátt vaxtastig eru ein helsta ástæðan fyrir því að ungt fólk flytur frá landi. Ef þú getur ekki keypt þér eða leigt íbúð í heimalandinu leitarðu eðlilega á önnur mið. Fæstir vilja búa í foreldrahúsum fram á fimmtugsaldur, og margir eiga einfaldlega ekki kost á að búa hjá foreldrum sínum.

Við í Viðreisn leggjum höfuðáherslu á að lækka vexti og minnka verðbólgu. Hér þurfa stjórnvöld að axla ábyrgð og ná jafnvægi í ríkisfjármálunum. Það gengur ekki lengur að reka ríkissjóð á yfirdrætti og greiða milljarða á milljarða ofan í vexti af skuldum ríkisins.

Gert er ráð fyrir nærri 60 milljarða króna halla á fjárlögum næsta árs. Þetta eru 60 milljarðar króna sem ríkið ætlar að eyða en á ekki. Í verðbólguumræðunni síðustu ár hefur reglulega verið hvatt til færri ferða til Tenerife. Ímyndið ykkur hvað þið gætuð farið oft til Tene fyrir 60 milljarða.

Við í Viðreisn ætlum ekki bara að rétta af ríkisreksturinn til að ná böndum á vexti og verðbólgu. Við munum einnig losa ríkisjarðir fyrir húsnæðisuppbyggingu, en þannig má byggja um 3.000 nýjar íbúðir.

En við þurfum líka að breyta mörgu öðru. Ég ætla samt ekki að láta freistast til að fara í smáatriðum yfir það sem við viljum breyta og bæta varðandi geðheilbrigðismál, biðlista barna, aðgengi að menntun, Menntasjóð námsmanna, fæðingarorlof og margt fleira. Annars næðir þú ekki að klára að lesa greinina fyrr en eftir kosningar.

Lífvænlegt Ísland

Sjálfri langar mig ekki að flytja úr landi, jafnvel þótt mér hafi verið ískalt í morgun. Ég vil þvert á móti leggja mitt af mörkum til þess að gera fólki kleift að búa áfram á Íslandi.

Einmitt það viljum við í Viðreisn gera. Við munum standa vörð um hagsmuni ungs fólks (á öllum aldri) svo fólk geti unnið hér og stundað nám, keypt sér eða leigt húsnæði á eðlilegu verði, eignast börn og sótt þá þjónustu sem það þarf. Setjum X við C í kjörkassanum 30. nóvember, já eða fyrr ef þið viljið kjósa utan kjörfundar.

Greinin birtist fyrst á Vísi 25. nóvember 2024