Aðalfundur félags Viðreisnar í Hafnarfirði

When

01/09    
17:30 - 19:00

Where

Húsnæði Viðreisnar
Ármúli 42, Reykjavík

Event Type

Stjórn félags Viðreisnar í Hafnarfirði boðar til aðalfundar þriðjudaginn 1. september nk. kl 17.30 í sal Viðreisnar, Ármúla 42 – 2. hæð, Reykjavík.

 

Öll þau sem eru áhugasöm um að starfa með félaginu eru hvött til að senda framboð til stjórnar eða formanns fyrir 25. ágúst með því að senda tölvupóst á netfangið hafnarfjordur@vidreisn.is.

 

Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Reikningar lagðir fram, staðfestir af skoðunarmönnum
  3. Umræður og afgreiðsla ályktana
  4. Kosning formanns
  5. Kosning fjögurra stjórnarmanna
  6. Kosning tveggja manna varastjórnar
  7. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
  8. Kosning fulltrúa í landshlutaráð. (Kosinn skal einn fulltrúi fyrir hverja tuttugu félagsmenn og gildir umboð þeirra til næsta aðalfundar félagsins)
  9. Önnur mál.

 

Aðalfundur er opinn öllum skráðum félögum og skal einnig boðaður með netpósti til allra skráðra félaga með minnst tveggja vikna fyrirvara (14 daga). Þá skal tilgreina dagskrá fundarins í fundarboðinu.

 

Framboð til stjórnar og formanns Félags Viðreisnar í Hafnarfirði verða að hafa borist minnst 7 dögum fyrir aðalfund eða 25. ágúst 2020 með tölvupósti á netfangið hafnarfjordur@vidreisn.is

 

Allir félagsmenn eru hjartanlega velkomnir. Vegna Covid-19 eru félagsmenn vinsamlegast beðnir um að tilkynna þátttöku með tölvupósti á: hafnarfjordur@vidreisn.is. Gætt verður að sóttvörnum á staðnum en fundargestir eru beðnir um að virða 2ja metra regluna. Ef útlit er fyrir að fleiri muni mæta en Ármúlinn ber, ef allir virði 2ja metra regluna verður hugað að nýjum fundarstað.

 

f.h stjórn félags Viðreisnar í Hafnarfirði
Þórey S Þórisdóttir
formaður