Aðalfundur Félags Viðreisnar í Kópavogi

When

15/09    
19:30 - 21:00

Where

Húsnæði Viðreisnar
Ármúli 42, Reykjavík

Event Type

Stjórn félags Viðreisnar í Kópavogi boðar til aðalfundar þriðjudaginn 15. september nk. kl 19.30 í sal Viðreisnar, Ármúla 42 – 2. hæð, Reykjavík.

 

Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Reikningar lagðir fram, staðfestir af skoðunarmönnum.
  3. Umræður og afgreiðsla ályktana.
  4. Kosning formanns.
  5. Kosning fjögurra stjórnarmanna.
  6. Kosning tveggja manna varastjórnar.
  7. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
  8. Kosning fulltrúa í landshlutaráð. (Kosinn skal einn fulltrúi fyrir hverja tuttugu félagsmenn og gildir umboð þeirra til næsta aðalfundar félagsins)
  9. Önnur mál.

 

Aðalfundur er opinn öllum skráðum félögum og skal einnig boðaður með netpósti til allra skráðra félaga með minnst tveggja vikna fyrirvara (14 daga). Þá skal tilgreina dagskrá fundarins í fundarboðinu.

 

Framboð til stjórnar og formanns Félags Viðreisnar í Kópavogi verða að hafa borist minnst 7 dögum fyrir aðalfund eða 8. september 2020 með netpósti á netfangið kopavogur@vidreisn.is

 

Allir félagsmenn eru hjartanlega velkomnir, vinsamlegast tilkynnið þátttöku með tölvupósti á: kopavogur@vidreisn.is

 

Gætt verður að sóttvörnum og biðjum við fólk um að virða 2ja metra regluna. Spritt og andlitsgrímur á staðnum.

 

f.h stjórn félags Viðreisnar í Kópavogi

Friðrik Sigurðsson formaður