Aðalfundur Uppreisnar

When

09/10    
16:00

Event Type

Stjórn Uppreisnar boðar til aðalfundar þann 9. október 2021, húsið opnar 15:30 og fundur byrjar stundvíslega klukkan 16:00. Fundurinn er opinn öllum á aldrinum 16-35 ára sem hafa áhuga á starfi Uppreisnar. Staðsetning verður auglýst síðar. Fylgjast má með fréttum af viðburðinum á Facebook.
Nánari dagskrá fundar verður auglýst síðar.
Kosið verður í 5 stjórnarembætti: forseta, varaforseta, alþjóðafulltrúa, gjaldkera og viðburðastjóra. Frestur til að skila inn framboði er viku fyrir aðalfund, kl. 23:59 þann 2. október (laugardagur), og skal senda framboðstilkynningu með pósti á uppreisn@vidreisn.is.
Frestur til að skila inn lagabreytingartillögum er 5 dögum fyrir aðalfund, kl 23:59 þann 4. október (mánudagur), og skal senda með póst á uppreisn@vidreisn.is.
Allir félagar í Uppreisn, sem skráðir hafa verið í félagið minnst viku fyrir aðalfund (2. október), hafa kjörgengi í embætti og atkvæðisrétt þegar kosið er í stjórn eða um lagabreytingar. Líkt og að ofan greinir er skráning í félagið þó ekki skilyrði fyrir því að mæta á fundinn og vera með.
Nálgast má lög félagsins hér: http://uppreisn.eu/um-okkur-2/log-uppreisnar/