27 jan Aðalfundur Viðreisnar í Hafnarfirði
Aðalfundur Viðreisnar í Hafnarfirði og aðferð við val á lista
Rafrænn aðalfundur Viðreisnar í Hafnarfirði verður fimmtudaginn 27. janúar nk. kl 20.00 á Zoom. Á sama fundi verður borið undir félagsfund val á aðferð til að raða á lista fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, kosið í uppstillinganefnd og ef þarf, í kjörstjórn fyrir prófkjör.
Dagskrá aðalfundar er:
- Skýrsla stjórnar
a. Ráðsmenn fara yfir helstu áherslur framundan - Reikningar lagðir fram, staðfestir af skoðunarmönnum
- Umræður og afgreiðsla ályktana – samþykktir félagsins
- Kosning formanns
- Kosning fjögurra stjórnarmanna
- Kosning tveggja manna varastjórnar
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
- Önnur mál
a. Val á aðferð við uppröðun á lista fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar
b. Kosning 3 einstaklinga í uppstillinganefnd (og 2 til vara)
c. Ef prófkjör verður fyrir valinu: Kosning 3 einstaklinga í kjörstjórn (og 2 til vara)
d. Önnur mál
Framboð til stjórnar og formanns Viðreisnar í Hafnarfirði verða að hafa borist minnst 7 dögum fyrir aðalfund eða 20. janúar 2022 með netpósti á netfangið hafnarfjordur@vidreisn.is
Ef þú ert félagi í Viðreisn í Hafnarfirði og hefur ekki fengið hlekk á fundinn getur þú sent póst á hafnarfjordur@vidreisn.is eða vidreisn@vidreisn.is
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest á fundinum.
Stjórn Viðreisnar í Hafnarfirði