28 okt Fundur sveitarstjórnarráðs
Sveitarstjórnarráð boðar til fundar í Ármúla 42. Á dagskrá er umræða um sveitarstjórnarkosningar í vor og undirbúningur.
Sveitarstjórnarráð er samstarfsvettvangur fulltrúa Viðreisnar í sveitastjórnum og er Viðreisn til ráðuneytis um sveitarstjórnarmál. Sveitarstjórnarráð fjallar um sameiginlega stefnumótun í málefnum sveitarfélaga í samræmi við stefnu Viðreisnar.
Sveitarstjórnarráð er skipað öllum aðal- og varafulltrúum í sveitarstjórnum auk þeirra sem eiga sæti í nefndum sveitastjórna sem eru flokksbundnir í Viðreisn, framkvæmdastjóri flokksins, og starfsmaður Sveitarstjórnarráðs.
Þeir fundargestir sem vilja hlekk á fjarfund sveitarstjórnarráðs geta sent póst á svanborg@vidreisn.is