Garðabær: Opinn fundur með Þorgerði og Sigmari

When

14/09    
20:00

Where

Dæinn
Vinastræti 14, Urriðaholti, Garðabær

Event Type

Það styttist í kosningar og nauðsynlegt er fyrir alla að kynna sér vel hvað stjórnmálaflokkarnir ætla að leggja áherslu á.
Viðreisn í Garðabæ býður því Garðbæingum og öðrum úr Suðvesturkjördæmi á opinn fund á Dæinn, Vinarstræti 14 í Urriðaholti, þriðjudagskvöldið 14. september kl. 20:00.
Þar munu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Sigmar Guðmundsson sem leiða listann í kjördæminu okkar svara spurningum og taka umræður við fólkið.
Meðal þess sem rætt verður:
* Hvernig getum við bætt heilbrigðiskerfið og fært þjónustuna nær fólki?
* Hvernig ætlum við að axla ábyrgð á loftslagsmálunum og hringrásarhagkerfinu?
* Af hverju skiptir máli að fá stöðugan gjaldmiðil?
* Hvernig mun tillaga Viðreisnar um markaðsleið í sjávarútvegi skapa sátt um nýtingu auðlindanna?
Öllum velkomið að mæta, væta kverkarnar, hlusta, spyrja spurninga og taka umræðuna um málefnin.