Landsfundur Uppreisnar

Hvenær

07/10    
18:00 - 23:45

Hvar

Viðreisn
Suðurlandsbraut 22, 5. hæð Gengið inn að aftan, Reykjavík, 108

Event Type

Framkvæmdastjórn Uppreisnar boðar til landsfundar þann 7. október 2023, húsið opnar 18:00 og fundurinn byrjar 18:30. Fundurinn er opinn öllum á aldrinum 16-35 ára sem hafa áhuga á starfi Uppreisnar. Fundurinn verður í húsnæði Viðreisnar í Suðurlandsbraut 22.
Dagskrá Landsfundar er eftirfarandi.
I. Samþykkt fundarskapa.
II. Kosning fundarstjóra og ritara og eins aðila í kjörstjórn
III. Skýrsla framkvæmdastjórnar og umræður.
IV. Skýrsla gjaldkera, framlagning og umræður um reikninga.
V. Lagabreytingar.
VI. Kosningar í embætti í eftirfarandi röð:
1. Kosning forseta Uppreisnar
2. Kosning varaforseta Uppreisnar
3. Kosning fimm meðstjórnenda í framkvæmdastjórn
4. Kosning allt að átta fulltrúa í félagastjórn
5. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
VII. Önnur mál.
VIII. Þingslit.
Kosið verður í 7 stjórnarembætti: forseta, varaforseta og 5 meðstjórnendur í framkvæmdastjórn auk þess að kosnir verða 8 fulltrúar í félagastjórn.
Frestur til að skila inn framboði er viku fyrir landsfund, kl. 23:59 þann 30.september (laugardagur), og skal senda framboðstilkynningu með pósti á natan2759@gmail.com. Natan Kolbeinsson er kjörstjóri landsfundar og svarar öllum spurningum um framboð.
Frestur til að skila inn lagabreytingartillögum er 5 dögum fyrir landsfund, kl 23:59 þann 1. október(mánudagur), og skal senda með póst á uppreisn@vidreisn.is.
Allir félagar í Uppreisn, sem skráðir hafa verið í félagið minnst viku fyrir landsfund (30. september), hafa kjörgengi í embætti og atkvæðisrétt þegar kosið er í stjórn eða um lagabreytingar. Líkt og að ofan greinir er skráning í félagið þó ekki skilyrði fyrir því að mæta á fundinn og vera með.