28 ágú Landsþing Viðreisnar – opið streymi
Sýnt verður beint frá seinni hluta landsþings Viðreisnar og streymt á facebook síðu og vef Viðreisnar. Gert er ráð fyrir að útsending hefjist kl. 16.00 en ef umræður verða mjög miklar á landsþinginu gæti það tafist aðeins. Hægt verður að fylgjast með frá kl. 16.00
Dagskráin í opnu streymi er:
16:00 – Ávarp Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar
16:15 – Samþykkt stjórnmálaályktun kynnt
16:20 – Sigmar Guðmundsson ræðir við frambjóðendur
17:00 – Ávarp Starra Reynissonar, forseta Uppreisnar
17:15 – Græni þráðurinn kynntur
17:30 – Ávarp Daði Márs Kristóferssonar, varaformanns Viðreisnar, sem slítur þinginu.