07 maí Vill skoða fjárfestingar Íslandspósts
Ástæða er til þess að skoða hvaðan þeir fjármunir eru komnir sem Íslandspóstur hefur notað til þess að fjárfesta í rekstri í samkeppni við einkaaðila, sagði Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, undirliðnum störf þingsins á Alþingi í dag.
Þá sagði þingmaðurinn mörgum spurningum enn ósvarað í sambandi við ný lög um póstþjónustu.
„Það þarf að liggja fyrir hver er uppruni þessa fjármagns og hvort aðskilnaðurinn [milli ríkis og Íslandspósts] hafi verið í samræmi við lög og reglur,“ sagði hún. Tilefnið var frumvarp sem liggur fyrir þinginu sem afnemur einkarétt Íslandspósts á póstdreifingu.
„Það verður að fá botn í þetta áður en einkaréttur Íslandspósts er afnuminn og Íslandspóstur í framhaldinu er seldur eins og má gera ráð fyrir að fyrirætlunin sé. Annars er hætta á að nýjum eigendum verður afhent fyrirtæki með mikla og ósanngjarna meðgjöf,“ sagði Hanna Katrín.