Forseti snuprar forsætisráðherra sinn

Þorsteinn Pálsson

Það er fremur súrt í broti fyrir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra að koma á þessum þjóðhátíðardegi fram fyrir þjóðina og skýra hvers vegna fjögurra ára vinna við áfangaskipta endurskoðun stjórnarskrárinnar undir hennar forystu fór út um þúfur.

Undirbúningurinn var góður og Alþingi hafði nægan tíma. Að auki fékk almenningur að segja álit sitt í sérstakri rökræðukönnun.

Ábyrgð stjórnarmeirihlutans

Þegar til kastanna kom treysti forsætisráðherra sér ekki til þess að láta málið koma til atkvæða á Alþingi. Einnig var fallið frá fyrri ákvörðun ríkisstjórnarinnar um sérstakt þinghald í ágúst til þess að fjalla um stjórnarskrána.

Enginn fær því að vita hver raunveruleg afstaða Alþingis er.

Það er stjórnarmeirihlutinn sem ræður því hvort mál komast úr þingnefnd til umræðu og atkvæðagreiðslu á Alþingi. Hann kaus að drepa málið í nefnd.

Fyrir lá að Framsókn studdi frumvarpið óbreytt, en afstaða Sjálfstæðisflokksins var já, já og nei, nei. Ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði verið með hefði forsætisráðherra ekki aðeins haft einfaldan meirihluta heldur aukinn meirihluta, því að Miðflokkurinn gat stutt málið og Viðreisn, að auðlindaákvæðinu frátöldu.

Tímaskorti var ekki um að kenna því að fyrir lá að stjórnarandstaðan ætlaði ekki að beita málþófi. Ábyrgð ríkisstjórnarmeirihlutans á strandsiglingunni er því alveg skýr.

Gagnrýni undir rós

Forsætisráðherra talar samt eins og óljós og óskilgreind andstaða á Alþingi hafi stöðvað málið. Engir aðrir en hún og stjórnarmeirihlutinn bera þó ábyrgð á því að Alþingi fékk ekki að taka afstöðu.

Það var ánægjulegt að sjá forseta Íslands stíga fram á umræðusviðið. Hann átaldi Alþingi fyrir sleifarlag. Það var réttmæt gagnrýni.

Forseti þekkir vel lögmál þingræðisskipulagsins og reglur þingskapa. Hann veit því að villandi er að saka Alþingi í heild um að hlaupast undan merkjum þegar stjórnarmeirihluti kemur í veg fyrir að mál sé afgreitt úr nefnd og komi til atkvæða.

Ekki verður því annað ráðið en forseti sé undir rós að setja ofan í við forsætisráðherra sinn og samstarfsflokka hans.

Málsmeðferð og efnisatriði

Gagnrýni forseta virðist fyrst og fremst beinast að málsmeðferðinni á Alþingi, sem forsætisráðherra ber ábyrgð á.

En það var líka efnislegur ágreiningur, einkum um eitt grundvallaratriði. Fyrir síðustu kosningar boðuðu sex flokkar að nýtingarréttur auðlinda í þjóðareign skyldi vera tímabundinn. Þeir fengu tvo þriðju atkvæða.

Framsókn og VG féllu frá þessari stefnu til að koma til móts við samstarfsflokkinn. Flokkur fólksins, Píratar, Samfylking og Viðreisn hvikuðu hins vegar ekki frá henni.

Afar ósennilegt er að forseti hafi ætlað að áfellast stjórnarflokkana fyrir þessa málamiðlun. Og fjarstæðukennt væri að gefa í skyn að hann hafi ætlast til að stjórnarandstöðuflokkarnir fjórir ættu að svíkja afdráttarlaus loforð við kjósendur um slíkt prinsippmál.

Forseti Íslands blandar sér að sjálfsögðu í pólitík telji hann það nauðsynlegt. Þegar það gerist er þó æskilegt að hann sé skýrmæltur en ekki loðinn.

Ólafur Ragnar Grímsson tætti í sig fyrirliggjandi stjórnarskrártillögur í þingsetningarræðu 2015. Hvað sem um þá ræðu má segja var afstaða hans til einstakra efnisatriða klár og ekki fór á milli mála hverja hann gagnrýndi.

Hvers vegna fær þjóðin ekki að taka afstöðu?

Spurningin, sem forsætisráðherra skuldar þjóðinni svar við, er þessi: Hvers vegna leyfði stjórnarmeirihlutinn ekki Alþingi að greiða atkvæði? Það var eina leiðin til að ljúka málinu með lýðræðislegum hætti.

Vel hefði farið á því að forseti hefði með berum orðum mælst til þess við forsætisráðherra sinn að leyfa lýðræðinu að hafa eðlilegan framgang.

Skýringin á afstöðu meirihlutans blasir þó við:

Stjórnarskrárbreytingar kalla á endurstaðfestingu á nýju þingi. Kosningarnar hefðu því jafnframt orðið þjóðaratkvæði um innihald auðlindaákvæðis, sem veitir einni atvinnugrein undanþágu frá meginreglunni um tímabundinn nýtingarrétt.

Í reynd hefðu þær orðið þjóðaratkvæði um stjórnarskrárvarða almannahagsmuni eða sérhagsmuni?

Á endanum virðast ríkisstjórnarflokkarnir ekki hafa treyst kjósendum til að fylgja sérhagsmunalínunni.

Um leið voru kjósendur sviptir tækifæri til að gera út um mál, sem fyrir löngu er komið á tíma.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 17. júní 2021