Af skeini­pappír og öryggis­kennd

Ég, eins og margir Íslendingar, keyri beinustu leið í Costco og kaupi mér skeinipappír í hvert sinn sem áföll dynja á, hvort heldur eldfjöll gjósi eða landamæri lokist vegna heimsfaraldurs. Ekki það að mig skorti skeinipappír, þessi ósjálfráðu viðbrögð veita mér öryggiskennd. Hún er ómetanleg.

Þegar Kófið skall á voru það helst ferðaþjónustan, veitingastaðir, barir og sviðslistir sem urðu fyrir höggi. Fólk sem starfar í þessum geirum missti, á núll einni, lífsviðurværi sitt. Fólk eins og ég, sem starfa á allt öðrum vettvangi, varð fyrir sáralitlum búsifjum.

Eitt af fyrstu úrræðum ríkisstjórnarinnar var að auka endurgreiðsluhlutfall virðisaukaskatts af iðnaðarvinnu við heimili o.fl. úr 60% í 100%. Það átti sem sagt að auka eftirspurn eftir iðnaðarmönnum sem voru ekki að glíma við eftirspurnarvanda og hjálpa fólki við að dytta að fasteignum sínum sem þurftu ekki lífsnauðsynlega aðstoð. Þessi skattaafsláttur er tekjumissir upp á um 9 milljarða fyrir ríkissjóð. Þessi efnahagsaðgerð skilaði engu til þeirra sem urðu fyrir efnahaglega högginu en jók á vanda ríkissjóðs.

Það er því merkilegt að sjá afstöðu þeirra flokka, sem nú eru í framboði til þessa verkefnis „Allir vinna“. Þar er Viðreisn eini flokkurinn sem vill færa það til fyrra horfs, þar sem endurgreiðsluhlutfallið er 60% og tekjustreymi ríkissjóðs er sama tíma eflt um 9 milljarða. Þannig getur ríkið verið öflugra í sértækum aðgerðum til þeirra sem sannarlega urðu fyrir tekjufalli. Það er kannski ekki vinsælt en það er nauðsynlegt og skynsamlegt og í takt við þá ábyrgu fjármálastefnu sem flokkurinn hefur ávalt staðið fyrir.

Þessi Costcoferð ríkisstjórnarinnar veitti henni örugglega öryggiskennd en nú er komin tími til að sleppa takinu á rúllunum og fara í sértækar aðgerðir sem bæta hag ríkissjóðs og þeirra sem misstu svo mikið. Almennar aðgerðir koma þeim yfirleitt best sem ekki þurfa hjálpina. Næsta ríkisstjórn þarf að koma með sértækar aðgerðir strax.

Höfundur er oddviti Viðreisnar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.

Greinin birtist fyrst á Vísi 22. september 2021