Að bæta kjör sín með fast­eigna­kaupum

Leigumarkaðurinn á Íslandi er gjörólíkur hinum skandinavíska. Hlutdeild leigufélaga á markaði er mun lægri hér, regluverkið annað, leiguverð hærra og húsnæðisöryggi minna. Víða erlendis getur fólk valið hvort það vilji festa peningana sína í fasteign eða búa við sveigjanleika á leigumarkaði. Þar sem best lætur er ekki hægt að segja að annar hópurinn hafi það betra en hinn.

Því er öfugt farið hérlendis. Fólk sem býr í eigin fasteign eykur eign sína yfir ævina á meðan aðrir festast á leigumarkaði. Innan við 10% leigjenda segist vilja vera á leigumarkaði. Það er ekki sláandi í ljósi þess að stjórnvöld hafa rekið séreignastefnu með beinum hvötum til fasteignakaupa sem gera það mun hagstæðara að eiga húsnæði en að leigja.

Sumir leigjendur greiða hærri leigu en því sem nemur afborgunum lána fyrir sambærilegt húsnæði. Það er óskiljanlegt að fólk sem á fyrir útborgun, og sýnir mánuð eftir mánuð að það geti vel staðið undir greiðslum, standist ekki greiðslumat fyrir lægri fjárhæð en það greiðir nú þegar.

Við útreikning á greiðslugetu ber lánveitendum að taka mið af neysluviðmiðum á vef félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins. Slík viðmið eru því marki brennd að byggja á meðaltölum en ekki á einstaklingsbundinni neyslu. Til dæmis gera þau ráð fyrir rúmlega 200.000 krónum á ári í tómstundir og afþreyingu, á heimili tveggja fullorðinna einstaklinga með engin börn. Það skiptir engu máli við greiðslumat þótt fólk eyði mun minna en þetta í afþreyingu, þessi fjárhæð er algjört grunnviðmið.

Fólk veit þetta mætavel. Í skýrslu um neysluviðmiðin frá 2011 var gerður sá fyrirvari að þau séu „hvorki endanlegur mælikvarði á hvað telst nægjanleg neysla einstakra heimila né dómur um hvað einstakar fjölskyldur þurfa sér til framfæris“. Auðvitað ætti fólk því að hafa aukin tækifæri til þess að sýna fram á greiðslugetu sína þegar viðmiðið byggir ekki á traustari grunni en þessum.

Greiðslumat á að endurspegla greiðslugetu einstaklinga og fjölskyldna. Fátt endurspeglar greiðslugetuna betur en skoðun á þeim útgjöldum sem fólk hefur raunverulega staðið undir til lengri tíma. Þess vegna hef ég lagt fram þingmál, ásamt öðrum þingmönnum Viðreisnar, sem myndi heimila lánveitendum að taka tillit til þeirrar fjárhæðar sem fólk hefur greitt skv. þinglýstum leigusamningi í 12 mánuði eða lengur – og byggja greiðslumatið á henni.

Hér er ekki lagt til að fólki verði gert kleift að skuldbinda sig umfram greiðslugetu. Hér er lagt til að fólki, sem er sannarlega fært um að standa undir lánagreiðslum, verði heimilað að bæta kjör sín með fasteignakaupum í stað þess að vera bundið fast á óhagstæðum leigumarkaði.

Höfundur er varaþingmaður Viðreisnar.

Greinin birtist fyrst á Vísi 22. mars 2022