Stór-Reykja­vík er stór­skemmti­leg

Reykjavík er skemmtileg borg. Þetta vitum við sem hér búum, störfum eða heimsækjum. Þetta vita líka þær milljónir ferðamanna sem til Íslands koma. Við viljum lifandi borgarumhverfi, þar sem nóg er um að vera og fjölbreytt afþreying þrífst.

Ferðamenn hafa lengi talið Reykjavík vera hlið að hinni margrómuðu náttúru landsins. Á fjölmörgum hótelum, þegar að ferðamannafjöldinn er sem mestur, eru biðraðir af rútum sem sækja ferðamenn að morgni og skila að kvöldi eða nokkrum dögum síðar. En Stór-Reykjavíkursvæðið er svo miklu meira en bara hótel og veitingastaðir. Í ferðamálastefnu Reykjavíkur, er því lögð áhersla á að gera höfuðborgarsvæðið allt að áfangastað. Borg sem íslenskir og erlendir ferðamenn heimsækja og njóta alls þess sem borgin hefur upp á að bjóða; mannlífs, menningar, sögu, náttúru og heitra lauga.

Höfuðborgarsvæðið er einn áfangastaður

Þessi sýn mín tók skref nær því að raungerast um miðjan febrúar, eftir að hafa unnið ötullega að því að ná öllum sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu saman, auk hagsmunaaðila í ferðaþjónustu. Þá var undirritaður samningur um stofnun samstarfsvettvangs um áfangastaðinn Höfuðborgarsvæðið sem mun í lok þessa árs verða að Áfangastaðastofu Höfuðborgarsvæðisins. Þar munu sveitarfélögin og atvinnulífið, sérstaklega ferðaþjónustan, vinna saman að sjálfbærri framtíðarsýn fyrir ferðaþjónustuna og aukinni samkeppnishæfni Stór-Reykjavíkursvæðisins. Þar hafa öll sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins margt fram að færa. Til dæmis eru ekki margir sem gera sér grein fyrir að einn vinsælasti ferðamannastaður landsins er í Garðabæ; Bessastaðir sjálfir.

Öflug áfangastaðastofa skilar okkur skemmilegum tækifærum

En af hverju að stofna Áfangastaðastofu og fjölga ferðamönnum í Reykjavík? Fyrir utan að verða aftur ein stærsta stoð atvinnu á Íslandi, hefur ferðaþjónusta í Reykjavík gert mikið til að lífga upp á mannlífið í borginni. Með styrkari stoðum ferðaþjónustu er kominn jarðvegur til að stofna enn fleiri fyrirtæki sem leggja áherslu á afþreyingu, menningu, ný veitingahús, skemmtilegar náttúruferðir í borgarlandinu eða nágrenni þess sem gleður ekki einungis ferðamenn heldur ekki síður heimamenn.

Auk þess að skapa atvinnu verður borgin skemmtilegri fyrir okkur öll. Öflug Áfangastaðastofa styður við þá uppbyggingu sem þegar er hafin í borginni. Fyrir ekki svo löngu var frétt um kattargöngur í Reykjavík trúlega einsdæmi í heiminum. Þar geta íslenskir eða erlendir hópar gengið um miðborgina, hlustað á sögur um ketti og jafnvel heimsótt frægustu miðborgarkettina. Með því að styrkja Reykjavík sem áfangastað er hægt að skapa enn fleiri skemmileg störf fyrir einyrkja. Eða fara út í enn stærri verkefni, eins og baðstaði í ætt við Sky Lagoon eða stórkostlegar upplifanir eins og Fly Over Iceland. Það mætti jafnvel byggja upp hótel og þjónustu í kring um skíðasvæðin til að styrkja Reykjavík enn frekar sem stórkostlegan vetrar áfangastað. Tækifærin eru endalaus.

Sem oddviti Viðreisnar í Reykjavík hef ég náð að vinna þvert á flokka og sveitarfélög, til að gera góð verkefni að veruleika. Til að einfalda stjórnsýsluna, auka þjónustu við borgarbúa, efla innviðina okkar en ekki síst til að gera Reykjavík að enn skemmtilegri og lifandi borg.

Greinin birtist fyrst á Vísi 2. mars 2022