Börnin okkar á biðlistunum

Á mánudaginn síðastliðinn varð alvarlegt bílslys á Reykjanesbrautinni og umferð stöðvuð á meðan verið var að hlúa að fólki og koma slösuðum á sjúkrahús. Þennan veruleika þekkjum við sem eigum þarna leið um nær daglega.

Sem betur fer eigum við til fólk sem getur brugðist við þegar aðstæður sem þessar koma upp. Ég þekki það líka á eigin skinni að þurfa að reiða mig á viðbragð heilbrigðiskerfisins þegar veikindi koma upp hjá þeim sem manni standa næst. Fyrir það megum við vera þakklát og erum það svo sannarlega. Hins vegar eru til þær aðstæður þar sem ekki er verið að gera nóg og þörf á að velta því upp hvað veldur.

Að biðja um hjálp

Ég er lánsamur maður. Þegar ég sem ungur maður, veikur af sjúkdómnum alkóhólisma, bað um hjálp, þá fékk ég þá hjálp sem ég þurfti. Sá vegvísir dugði til þess að ég hef getað tekist betur á við lífið. Það eru hins vegar ekki allir svo heppnir og það eru ekki allir sem fá viðeigandi aðstoð þegar þeir þurfa á henni að halda. Okkar stóra viðfangsefni í dag er að bregðast við og greiða úr þeim flækjum sem óhjákvæmilega fylgja síbreytilegu og flóknu samfélagi.

Samfélagsbreytingin

Það er greinilegt að þær samfélagsbreytingar sem hafa átt sér stað undanfarin ár hafa aukið álag á grunnkerfin. Þótt ekki sé alveg ljóst hverju er um að kenna nefna margir afleiðingar af heimsfaraldri, mikla notkun samfélagsmiðla eða aukna notkun fíkniefna. Hver sem ástæðan er þá hefur andlegri líðan barna og ungmenna hrakað og þrátt fyrir þessa staðreynd hefur lítið gerst til þess að takast á við þá stöðu.

Hvenær á að bregðast við?

Staðan í samfélaginu okkar er því miður þannig að þegar barn biður um hjálp er það sett á biðlista og sá biðlisti getur verið ansi langur. Í millitíðinni getur ýmislegt gerst. Við sjáum sjálfsmorðstíðni vaxa og fjöldi dauðsfalla vegna of stórra skammta af vímuefnum er alltof mikill og fer því miður vaxandi.

En hvenær á að bregðast við? Að mínu mati á að bregðast við strax, rétt eins og með bílslysið. Við setjum ekki bílslys á biðlista og við ættum ekki heldur að gera það þegar börn eiga í hlut. Vandi barna er bráðavandi. Börn eiga ekki að vera á biðlista.

Greinin birtist fyrst á Vísi 1. nóvember 2024