Það ætti öllum Kópavogsbúum að vera orðið ljóst að samstaðan í bæjarstjórn Kópavogs er engin síðan nýr meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks tók við í fyrravor. Þó um sé að ræða sömu gömlu meirihlutaflokkana varð endurnýjunin slík að reynsla og þekking nánast þurrkaðist út. Inn kom...

Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga sendi Kópavogsbæ erindi nýverið eftir að hafa yfirfarið fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árið 2023. Ástæða erindisins var að lögbundið lágmarks skilyrði um framlegð var ekki uppfyllt. Rekstrargjöld eru of há miðað við reglulegar tekjur. Eftirlitsnefndin lagði áherslu á það við sveitarstjórn að...

Á árunum 2014-2018 fékk ég einstakt tækifæri, sem formaður skipulagsráðs í Kópavogi, til að breyta vinnubrögðum í skipulagsmálum og auka samráð og aðkomu íbúa að þróun hverfa. Á kjörtímabilinu voru haldnir um 50 opnir samráðs- og upplýsingafundir um gerð hverfisáætlana og umfangsmikla stefnumótun og samþykkt...

Garðbæingar vinna nú að því hörðum höndum að losa sig við „óæskilegan iðnað“ úr íbúabyggðum og hafa gert atlögu að því að koma honum fyrir ofan í íbúabyggð í Kópavogi. Atlagan krefst þó breytinga á gildandi svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins og áratuga löngu samkomulagi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu...

Margir muna eftir „græna treflinum“ svokallaða úr svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins en hann á að mynda samfellda umgjörð kringum borgina og skilgreinir mörk þéttbýlis og útmerkur. Samkomulag er um að græni trefillinn eigi að vera útivistarsvæði með samblöndu af skógræktarsvæðum og ósnortinni náttúru. Tilgangur hans er að...