Já, við vitum af þessu!

Í greininni Vita Garðbæingar af þessu?, sem birtist á vef Sjálfstæðismanna í okkar góða nágrannasveitarfélagi Kópavogi, er borin saman skuldastaða bæjarfélaganna og hvernig framsetningu rekstrarafkomu sveitarfélaga getur verið háttað.

Greinahöfundur er Jón Finnbogason varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi og fyrrverandi íbúi í Garðabæ. Í grein hans koma fram ýmsar staðreyndir sem staðfesta varnaðarorð okkar í Garðabæjarlistanum við afgreiðslu síðustu fjárhagsáætlunar. Skuldasöfnun á hvern íbúa hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár, þvert á hástemmdar og árlegar yfirlýsingar meirihlutans um afburða afkomu sveitarfélagsins.

Við vöruðum við því augljósa hættumerki að afgangur sveitarsjóðs fer hraðminnkandi á sama tíma og afar fjárfrek mannvirkjaframkvæmd er á byrjunarstigi; framkvæmd sem byggir á mikilli óvissu í fjármögnun. Sú framkvæmd við byggingu fjölnota íþróttahúss kallar á mikla lántöku á árinu, á sama tíma og bundnar eru vonir við hraða lóðasölu í Vetrarmýrinni. Þar ræður óskhyggjan för hjá félögum okkar í meirihlutanum.

Skuldasöfnun, samdráttur, lántökur og óskhyggja er það sem meirihlutinn í bæjarstjórn Garðarbæjar kýs að klæða í nýju fötin keisarans og nefna „ábyrga fjármálastjórn“. Í grein Jóns nágranna okkar kemur fram að árið 2012 voru skuldir og skuldbindingar á hvern íbúa í Kópavogi 1.408 þúsund kr. en á sama tíma 578 þúsund kr. í Garðabæ. Við árslok 2018 var sama tala í Kópavogi 1.212 þúsund kr. á hvern íbúa, en 872 þúsund kr. í Garðabæ. Skuldir á hvern íbúa höfðu því lækkað í Kópavogi um 14% en hækkað á hvern íbúa í Garðabæ um 51%.

Skuldasöfnun á hvern íbúa í Garðabæ eykst hratt á sama tíma og kólnun á sér stað í hagkerfinu. Garðabær hefur reyndar vinninginn umfram Kópavog að því er fasteignaskatta varðar, því þar hafa nágrannar okkar verið iðnari við hækkanir undanfarið. Það vegur þó lítið á móti hækkun útsvars. Í Kópavogi hækkaði útsvarið á hvern bæjarbúa frá 2012 til 2018 úr 393 þúsund kr. í 583 þúsund kr., sem er 48,6% hækkun. Í Garðabæ hækkaði útsvar á hvern bæjarbúa úr 405 þúsund kr. í 613 þúsund kr. eða um 51,5%. Það er varla neitt keppikefli að sigra í slíkum samanburði!

Í samfélagi, þar sem meirihlutinn trúir því að svart sé hvítt, skuldir séu eignir og keisarinn sé í raun kappklæddur þá er ekki líklegt að þróuninni verði snúið við. Garðbæingar geta átt von á áframhaldandi hækkun útsvars, ef svo fer sem horfir.

Höfundur er oddviti Garðabæjarlistans.

Greinin birtist fyrst á Vísi 7. janúar 2020