Í aðdraganda kosninga beina frambjóðendur athyglinni helst að þeim málum sem ætla má að séu heitustu umræðuefnin við eldhúsborðin á heimilum landsmanna. Vextir húsbyggjenda, biðlistar, skólar og atvinnan eru eðlilega nærtæk umræðuefni. Önnur mál, sem virðast fjarlægari, geta þó haft jafn mikil eða meiri áhrif á...

Þingmenn fráfarandi stjórnarflokka hafa allt þetta kjörtímabil skýrt fallandi fylgi í könnunum með því að það sé orðið lögmál í lýðræðisríkjum að allar ríkisstjórnir tapi fylgi óháð því hvernig þær standi sig. Á sama tíma staðhæfðu þeir að samstaðan í ríkisstjórninni væri einstök og engin ríkisstjórn...

Seðlabankastjóri sagði á ráðstefnu á dögunum að upptaka annars gjaldmiðils væri „sisona engin lausn.“ Evran er að sjálfsögðu ekki hugsuð sem lausn. Hún er bara verkfæri sem gæti auðveldað okkur að leysa efnahagslegan óstöðugleika og himinhrópandi misrétti í samfélaginu. Kjósendur ættu fremur að velta fyrir sér spurningunni:...

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar komst einhvern veginn þannig að orði að stjórnarslitin væru besta ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Vel má vera að þessi ummæli hafi að hluta til verið hugsuð sem kerskni. Samt sem áður þykir mér trúlegt að meginþorri kjósenda stjórnarflokkanna jafnt sem stjórnarandstöðuflokkanna líti einmitt...

Landsfundur VG ákvað að slíta stjórnarsamstarfinu frá og með næsta vori. Aldrei fyrr hefur stjórnarsamstarfi verið slitið með svo löngum fyrirvara og án þess að tiltaka frá og með hvaða degi stjórnarslitaákvörðunin tekur gildi. Á fjármálamörkuðum taka menn gjarnan áhættu með svokölluðum framvirkum samningum. Slíkir afleiðugerningar...

Raunvextir hafa lengi verið margfalt hærri en í grannlöndunum. Þingmenn stjórnarflokkanna staðhæfa að ekki sé við krónuna að sakast. Allt sé þetta spurning um hverjir stjórna. Ganga má út frá því að þeir hafi fullir ástríðu lagt sig alla fram og gert allt sem í þeirra...

Vinnuvikan byrjaði með tveimur athyglisverðum fundum, sem snerust um auðlindir og kostnað við að tryggja varanleika í rekstri. Annan fundinn sátu forstjóri Orkubús Vestfjarða og forstjóri Landsvirkjunar. Þeir undirrituðu samning um varanleika í orkuafhendingu. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi héldu hinn fundinn. Þar var kynnt sú hugmyndafræði...

„Það mun einn daginn sjóða upp úr og þegar það gerist þá dugar ekki að læsa samviskuna inni, hún verður einfaldlega rifin úr brjóstum manna þar sem hún hímir bakvið hvíta rimla þeirra sem kynda bálið.“ Þetta er tilvitnun í grein Bubba Morthens um íslensku stríðsástandsvextina,...

Formaður þingflokks sjálfstæðismanna opnaði stjórnmálaumræðuna eftir hefðbundna sumarládeyðu. Boðskapurinn var skýr og afdráttarlaus: Aldrei aftur í stjórn með VG. Yfirlýsingin vakta talsverða athygli. Og hún kveikti líka spurningar: Hvers vegan ekki að hætta strax ef það þykir sjálfgefið að ári? Eða: Hvers vegna er útilokað að halda...

Þegar verðbólga hækkaði verulega í síðasta mánuði hafði Innherji á Vísi eftir hagfræðingum Arion banka að óvænt hækkun breytti ekki heildarmyndinni. Fáeinir hrukku þó í kút af þessu tilefni. Í Danmörku hefði 0,5% hækkun verðbólgu verið líkt við jarðskjálfta. Í okkar umhverfi bera viðbrögð bankahagfræðinganna hins...