Félagsfundur Viðreisnar á Akureyri staðfesti í kvöld tillögu uppstillinganefndar um röðun á lista fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, stjórnmálafræðingur og varaþingmaður leiðir lista Viðreisnar. Í öðru sæti er Elías Gunnar Þorbjörnsson, skólastjóri Giljaskóla. Í þriðja sæti er Þóroddur Ingvarsson, svæfinga- og gjörgæslulæknir og í...

Á félagsfundi Viðreisnar í Múlaþingi í vikunni var sú ákvörðun tekin að Viðreisn myndi bjóða fram undir eigin nafni í komandi sveitarstjórnarkosningum. Þetta er fyrsta skipti sem flokkurinn býður fram í sveitarfélaginu. Ákveðið var að stillt yrði upp á lista og var kosið í uppstillingarnefnd sem...

María Ellen Steingrímsdóttir var kjörin oddviti Viðreisnar í  Kópavogi í rafrænu leiðtogaprófkjöri sem fram fór í dag. Hún mun því leiða lista Viðreisnar í komandi borgarstjórnarkosningum.  Í öðru sæti lenti Pétur Björgvin Sveinsson og í því þriðja Arnar Grétarsson. Þrjú efstu sæti prófkjörsins eru bindandi...

Viðreisn mun bjóða fram í Ísafjarðarbæ í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí næstkomandi. Viðreisn hefur verið hluti af Í-listanum en ekki náðist samkomulag um áframhaldandi samstarf á þeim grunni. Flokkarnir sem stóðu að Í-listanum skilja í sátt og með þökk fyrir gott samstarf á umliðnum árum. Viðreisn mun...

Þingflokkur Viðreisnar hefur ráðið Emilíu Björt Írisardóttur Bachmann, lögfræðing, til starfa. Hún tekur við af Sigurjóni Njarðarsyni sem hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri þingflokksins. Starfsmenn þingflokks Viðreisnar eru fjórir talsins en fyrir eru Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir og Pétur Björgvin Sveinsson að störfum. Emilía Björt er með...

Björg Magnúsdóttir var kjörin oddviti Viðreisnar í  Reykjavík í rafrænu leiðtogaprófkjöri sem fram fór í dag. Hún mun því leiða lista Viðreisnar í komandi borgarstjórnarkosningum. Björg hlaut 1011 atkvæði í leiðtogaprófkjörinu eða 48% af gildum atkvæðum. „Ég er ofboðslega þakklát fyrir öll þau sem treystu mér til...

Það eru mjög margir að skrá sig í Viðreisn á vidreisn.is/vertu-med þessa dagana sem veldur álagi á kerfið. Við þökkum fyrir þolinmæði þeirra sem þurfa að gera fleiri en eina tilraun til þess að skrá sig inn. Ef það gengur illa að skrá sig inn...

Kjörstjórn Viðreisnar í Kópavogi hefur staðfest sjö framboð vegna prófkjörs félagsins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar en framboðsfrestur rann út kl. 12.00 í dag. Prófkjörið er bindandi um efstu þrjú sæti listans. Eftirtalin framboð hafa borist: Í framboði til 1. sætis: – Birgir Örn Guðjónsson, deildarstjóri hjá Barna- og fjölskyldustofu –...

Karólína Helga Símonardóttir var kjörinn oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði í rafrænu prófkjöri sem fór fram í dag og mun leiða listann í komandi sveitarstjórnarkosningum. Karólína hlaut 317 atkvæði í 1. sæti. Annað sætið hlaut Árni Stefán Guðjónsson með í 361 atkvæði í 1. og 2....

Í prófkjörskosningum Viðreisnar í Hafnarfirði, Reykjavík og Kópavogi, í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga 2026 verður rafræn kosning á vefnum kjosa.net/vidreisn. Þau geta kosið sem eru félagsmenn í Viðreisn að minnsta kosti tveimur dögum fyrir upphaf kosningar (miðað er við miðnætti aðfararnótt fimmtudagsins fyrir kosningu), eru 16 ára...