„Ef ég væri stjórnmálamaður væri ég skíthræddur við upptöku evru. Það myndi girða fyrir möguleika stjórnmálamanna að úthluta gæðum til vina og vandamanna.“ Þetta voru skilaboð Guðmundar Kristjánssonar forstjóra Brims í pallborðsumræðum með forseta ASÍ og framkvæmdastjóra SA á landsþingi Viðreisnar. Fyrirsögn á yfirlitsfrétt Morgunblaðsins um landsþingið...

Það styttist í sveitarstjórnarkosningar og eftir aðeins átta mánuði ganga landsmenn að kjörborðinu. Spennan eykst með degi hverjum og ljóst er að Viðreisn ætlar að láta til sín taka. Flokkurinn á nú fulltrúa í sveitarstjórnum víða um land, ýmist í samstarfi við aðra eða undir...

Viðburðaríkt og vel heppnað landsþing Viðreisnar var haldið um helgina og var það hið fjölmennasta í sögu flokksins en þátttakendur voru um 300 sem komu af öllu landinu. Viðreisnarþingið var sannkölluð lýðræðisveisla þar sem gleði, vinátta og samhugur einkenndi starfið. Á þinginu var mótuð stefna til næstu ára. Árangri flokksins í síðustu kosningum var fagnað svo og þátttöku hans...

Kosið var til embætta á landsþingi Viðreisnar, þann 21. september.   Formaður, varaformaður og ritari Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var endurkjörin formaður Viðreisnar með 99,4% gildra atkvæða. Alls greiddu 164 atkvæði. Þorgerður hlaut 162 atkvæði. Eitt atkvæði var autt og eitt ógilt. Daði Már Kristófersson var endurkjörinn varaformaður Viðreisnar með...

Á landsþingi Viðreisnar í gær flutti Guy Verhofstadt, fyrrverandi forsætisráðherra Belgíu, Evrópuþingmaður og núverandi forseti European Movement International, eldmessu í troðfullum sal um þá heimsmynd sem nú blasir við. Ræða hans var kraftmikil og ástríðufull og minnti okkur á að lýðræði og frelsi eru ekki...

Í umræðum á Alþingi í síðustu viku, eftir stefnuræðu forsætisráðherra, lýsti Miðflokkurinn þeirri framtíðarsýn að laga Ísland að amerískum hægri popúlisma. Sjálfstæðisflokkurinn lýsti skilmerkilega þeirri ætlan að vera fyrst og fremst eins máls flokkur gegn fullveldi fólksins til þess að ákveða hvort ljúka eigi samningaviðræðum við...