Hluthafar í Icelandair samþykktu á fundi sínum í maí að leita eftir nýju hlutafé til að treysta rekstur félagsins. Af því tilefni flutti stjórnarformaður þess þrumuádrepu yfir þeim sem tekið hafa þátt í opinberri umræðu um þann vanda, sem félagið stendur andspænis. Stjórnarformaðurinn taldi að þar...

Morgunblaðið greindi frá því á dögunum að utanríkisráðherra hefði óskað eftir heimild ríkisstjórnarinnar til þess að leyfa umfangsmiklar nýjar varnarframkvæmdir suður með sjó. Forsætisráðherra á að hafa hafnað beiðninni. Andstæðingum varnarsamvinnunnar hefur ekki áður tekist að stöðva varnarframkvæmdir þegar Sjálfstæðisflokkurinn hefur átt aðild að ríkisstjórn. Í...

Ný­leg um­mæli þeirra Loga Einars­sonar, formanns Sam­fylkingarinnar, og Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar um jöfnun at­kvæða milli lands­hluta má endur­segja þannig, að þeir telji jafn­ræði ekki for­gangs­mál.“ Þannig hefst grein, sem Þröstur Ólafs­son hag­fræðingur skrifaði ný­verið í Kjarnann. Til­efni hennar voru við­brögð þessara tveggja formanna við svari Katrínar...

Við kynningu á fyrstu neyðar­ráð­stöfunum ríkis­stjórnarinnar sagði for­maður Fram­sóknar að ekki yrði leitað inn í sams konar hag­kerfi og áður og enn fremur að öll sam­skipti við aðrar þjóðir yrðu tekin til endur­skoðunar. Í þessum anda viðra Píratar hugmyndir um einhvers konar fráhvarf frá markaðshagkerfinu. Og...

Í umræðum um getu þjóðarbúsins til viðspyrnu tala stjórnvöld aftur á móti einungis um þann styrk, sem þau telja að Ísland hafi umfram önnur lönd. Nefna má nokkur dæmi þar sem hálf sagan er sögð: 1. dæmi Stjórnvöld stappa stáli í fólk með því að endurtaka að...

Á laugardag í dymbilviku skrifuðu þau saman grein í Morgunblaðið forsætisráðherra og framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Efni hennar var þörf og gagnleg brýning til fólksins í landinu um að kaupa íslenska framleiðslu á þessum erfiðu tímum. Athygli vakti þó að greinarhöfundar töldu ekki þörf á að...

Ekki er óalgengt að fólk segist ekki hafa áhuga á pólitík því hún sé svo leiðinleg. Ýmsir eiga ekki erindi sem erfiði upp á pallborð stjórnmálanna fyrir þá sök að þeir þykja leiðinlegir eða alltént ekki nógu skemmtilegir. Leikræn tjáning hefur fylgt mælskulistinni frá öndverðu. Slíkir...

Bar­áttunni gegn kóróna­veirunni er oft líkt við stríð. Sumir þjóðar­leið­togar stappa stáli í fólk með því að láta hverri brýningu um að fara að sótt­varna­reglum fylgja bjart­sýnis­boð­skap um að þjóðin muni saman vinna stríðið. Þessi samlíking er minna notuð hér en í mörgum öðrum ríkjum. Í...

Stjórnvöld í Evrópu og víða um heim hafa síðustu daga gert grein fyrir mestu efnahagsráðstöfunum, sem sögur herma. Víðast hvar er um sams konar aðgerðir að ræða. Yfirleitt hafa Seðlabankar tekið forystu og ríkisstjórnir komið í kjölfarið. Hér hjá okkur hefur framgangur þessara mála verið með...