Í sumar hefur lítið heyrst frá ríkisstjórninni annað en hávær rifrildi innan úr stjórnarráðinu. Á sama tíma glímir almenningur við raunverulegan vanda. Vaxtahækkanir og verðbólga rýra ráðstöfunartekjur og óvissan um framhaldið er mikil. Sundruð ríkisstjórn virðist ekki geta starfað eftir skýrri stefnu í þágu almennings...

Í okkar litla hagkerfi beitum við gjaldeyrishöftum í stærri stíl en almennt þekkist í ríkjum, sem byggja á markaðsbúskap. Umfang þeirra jafngildir ríflega heilli þjóðarframleiðslu. Tilgangurinn er að halda uppi gengi krónunnar. Lífeyrissparnaður landsmanna er svo mikill að gjaldeyrishöft af þessari stærðargráðu nást með því einu...

Forsætisráðherra hitti naglann á höfuðið þegar hún sagði að kergjan í stærsta stjórnarflokknum lýsti fremur veikleika innanbúðar þar á bæ en brestum í ríkisstjórninni. Rokkarnir þögnuðu. Katrín Jakobsdóttir getur pollróleg staðhæft þetta. Hún veit sem er að hugmyndafræði meirihlutans í stærsta þingflokki ríkisstjórnarinnar er nær Miðflokknum...

Það vakti athygli og undrun margra, jafnvel stjórnarþingmanna og ráðherra, hversu fljótt þingið var sent í sumarfrí í ár. Fjölmörg stjórnarmál voru sett út af sakramentinu til að flýta ferlinu, jafnvel mál sem ekki var vitað til að sérstakur ágreiningur væri um meðal stjórnarflokkanna. Og...

Bankasýslan hefur ekkert lært. Í vikunni birti ríkisendurskoðandi þetta mat sitt á stöðu Íslandsbankamálsins. Jafnframt krefur ríkisendurskoðandi ríkisstjórnina um skýringar á því hvers vegna hún hefur ekki brugðist við ábendingum hans í skýrslunni frá því í fyrra, meðal annars um ábyrgð hennar á Bankasýslunni. Í raun er...

Þingmenn ríkisstjórnarflokkanna í fjárlaganefnd segja nauðsynlegt að starfslokasamningur Birnu Einarsdóttur verði birtur. Það er sanngjörn krafa. Bryndís Haraldsdóttir segir að það þurfi auðvitað að birta allt í kringum þessa sölu. Það er rétt. Og ef það er ætlunin að að endurheimta traust þarf að birta...

„Það er alveg ljóst að þessir stjórnendur verða að standa skil á gerðum sínum.“ Þannig komst forsætisráðherra að orði eftir áfellisdóm bankaeftirlits Seðlabankans um þátt Íslandsbanka í bankasöluferli ríkisstjórnarinnar. Fjármálaráðherra sagði svo að áfellisdómurinn yrði að hafa afleiðingar. Bankastjórinn vísar til þessara ummæla í afsagnaryfirlýsingu sinni í...