Galdurinn við myndun núverandi ríkisstjórnar var að leggja hugmyndafræðina til hliðar. Lausnin var: Praktísk viðbrögð þegar mál koma upp en að öðru leyti kyrrstaða um flest, nema ríkisvæðingu þeirrar heilbrigðisþjónustu, sem almannaheillasamtök hafa séð um. Ríkisstjórnin tók við í blússandi meðvindi. Við slíkar aðstæður getur pólitísk...

Nýju fötin keisarans í ævin­týri H. C. Ander­sen af­hjúpuðu hégóma og sjálfs­blekkingu. Nýju höftin Sjálf­stæðis­flokksins í frum­varpi, sem fjár­mála­ráð­herra hefur lagt fram á Al­þingi, af­hjúpa líka hégóma og sjálfs­blekkingu um krónuna. Frum­varp fjár­mála­ráð­herra felur í sér að auk þjóð­hags­var­úðar­tækja fái Seðla­bankinn og fjár­mála­ráð­herra vald til þess...

Í kjölfar þess að krónan hrundi og bankarnir féllu fyrir meir en tólf árum var gripið til umfangsmestu gjaldeyrishafta í manna minnum. Þetta var skammtíma neyðarráðstöfun, sem aðeins átti að gilda í nokkra mánuði. Heita má að einhugur hafi ríkt um þau ráð. Nær allir...

Stefnubreyting ríkisstjórnarinnar í lánamálum getur valdið flekamisgengi í þjóðarbúskapnum. Þegar ríkissjóður hættir við að taka innlend lán til að fjármagna hallann breytir það stöðu hans gagnvart atvinnulífinu. Í veigamiklum atriðum ræðst samkeppnisstaða útflutningsgreina eins og ferðaþjónustu af verðgildi krónunnar og stöðugleika hennar. Stefnubreytingin leiðir til þess...

Árið 2020 voru haldnir ófáir blaðamannafundir þar sem ríkisstjórnin trommaði upp aðgerðapakka. Opinber fjárfesting dróst hins vegar saman árið 2020 um 9,3% samkvæmt Hagsjá Landsbanka Íslands. Sú mynd sem blasir við er grafalvarleg. Hundruði milljarða átti að verja í innviði til að koma til móts...

Samtök atvinnulífsins birtu nýlega á heimasíðu sinni afar skarpa aðvörun um veikleika ríkisfjármálanna. Það er mikil alvara á ferðum þegar þau segja að forsendan, sem lántökustefnan byggir á, standist ekki. Sú kenning er nú nokkuð óumdeild að ríki geti tekið gífurleg lán til þess að...

Í lok síðasta árs ákvað rík­is­stjórn­in að yf­ir­gefa krón­una og færa sig yfir í evr­ur til þess að fjár­magna halla rík­is­sjóðs. Þessi kúvend­ing hef­ur hins veg­ar ekk­ert verið rædd á Alþingi. Þegar kór­ónu­veirukrepp­an skall á lýsti ríkisstjórnin því yfir að hún ætlaði að byggja á stuðningi...

Afstaða stjórnmálamanna til fjármála ríkisins ætti að vera kjósendum umhugsunarefni. Mín upplifun er að þeir skiptist í grófum dráttum í þrennt: Skattalækkarinn talar sífellt um að lækka skatta (kallar þá stundum álögur, sem er ágætt út frá áróðursgildi). Ég finn vissa samkennd með honum, því að ég er...